Skotbakvörður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Leikstöður í körfuknattleik | |
Leikstjórnandi | |
Skotbakvörður | |
Lítill framherji | |
Kraftframherji | |
Miðherji |
Skotbakvörður er leikstaða í körfuknattleik. Hún er yfirleitt skipuð lágvaxnari, léttari og sneggri einstaklingi en framherjar. Hann er oftar en ekki besta skyttan í liðinu, en getur einnig keyrt að körfunni. Margir skotbakverðir geta einnig leikið stöðu lítils framherja.
Michael Jordan, einn þekktasti körfuknattleiksmaður sögunnar, var skotbakvörður, og hjálpaði til að við skilgreina stöðuna eins og hún er í dag. Aðrir frægir skotbakverðir fyrri tíma eru m.a. Clyde Drexler, Jerry West, Walt Frazier og John Havlicek. Meðal skotbakvarða sem eru að spila í dag má nefna LeBron James, Kobe Bryant, Tracy McGrady og Paul Pierce.
Af íslenskum skotbakvörðum má m.a. nefna Pálmar Sigurðsson, Helga Jónas Guðfinnsson, Guðjón Skúlason, Magnús Þór Gunnarsson og Herbert Arnarson.