Skrúður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skrúður er 160 m há hamraeyja út frá minni Fáskrúðsfjarðar. Fuglalíf er þar fjölskrúðugt og 18 fuglategundir verpa í eyjunni. Eggja- og fuglatekja var mikil í eyjunni fyrrum. Eyjan var friðlýst árið 1995. Skrúður er gerður úr basalti og súru gosbergi. Skrúður heyrir undir jörðina Vattarnes.
Efnisyfirlit |
[breyta] Skrúðsbóndinn
Í Skrúðnum býr Skrúðsbóndinn en það er vættur sem rændi sauðum bænda sem létu fé sitt ganga í eyjunni. Skrúðsbóndinn seiddi einu sinni til sín prestdóttur til fylgilags. Sagnir eru til um að Skrúðsbóndinn hafi bjargað mönnum úr sjávarháska.
[breyta] Fuglalíf
Gífurlegt magn fugla verpir í eyjunni. Lundi er algengasti varpfuglinn þar en talið er að um 150.000 lundahjón byggi Skrúðinn. Svartfuglar eins og langvía og stuttnefja eru algengir varpfuglar í eynni, en álka og teista eru sjaldgæfari. Súla hóf að verpa í Skrúðnum árið 1943 og hefur henni fjölgað jafnt og þétt. Fýll og rita eru algengir bjargfuglar í Skrúðnum. Silfurmáfur, sílamáfur og svartbakur hafa sést í eynni. Þar hafa einnig sést æðarkollur, þúfutittlingar, maríuerlur, snjótittlingar, grágæsir, hrafnar, sæsvölur og stormsvölur.
[breyta] Skúðshellir
Í eyjunni er sérkennilegt náttúrufyrirbæri sem er stór hellir sem skiptist í tvo hella, þann ytri og þann innri. Fremri hellirinn er áætlaður um 3200 m² og sá innri 2600 m². Hellirinn er talinn vera um 125 metra langur, 85 metra breiður og mesta hæð hans er 22 metrar. Í hellinum er lundavarp. Fyrr á tímum var róið úr Skrúðnum og þá höfðust vermenn við í Skrúðshelli.
[breyta] Heimildir
- Fuglalíf í Skrúðnum. Skoðað 20. febrúar, 2006.