Stífla
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Stífla er hindrum í farvegi rennandi vatns sem lokar fyrir vatnsstreymi eða beinir því annað. Fyrir ofan stíflu myndast uppistöðulón, sem líkist oft stöðuvatni og nota má til vatnsmiðlunar (þ.e. miðlunarlón). Flestar stíflur eru með yfirfall sem hleypir vatni í gegn stöðugt eða á vissum tímum.
Fyrstu stíflurnar voru reistar í Mesópótamíu fyrir um 7000 árum til að stjórna vatnsmagni í ám sem var mjög breytilegt eftir veðri. Í Egyptalandi voru stíflur hluti af áveitukerfi sem miðlaði reglulegum flóðum í Níl út á ræktarlöndin.