Taugadeildin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Taugadeildin var íslensk síðpönkhljómsveit sem starfaði frá hausti 1980 til hausts 1981. Veturinn 2004 kom hljómsveitin saman á ný.
Hljómsveitin var stofnuð af Árna Daníel Júlíussyni (bassi) og Óskari Þórissyni (söngur). Árni Daníel hafði verið söngvari pönkhljómsveitarinnar Snillinganna sem stofnuð var í Kópavogi 1979 og starfaði veturinn 1979-1980. Óskar hafði starfað með Fræbblunum vorið 1979. Fljótlega gekk Arnór Snorrason gítarleikari, sem verið hafði í Snillingunum, til liðs við Taugadeildina.
Arnór hætti snemma vors 1980 og gekk þá Óðinn Guðbrandsson til liðs við hljómsveitina sem gítarleikari. Einnig gekk hljómborðsleikarinn Þorsteinn Hallgrímsson í Taugadeildina og trommuleikarinn Kormákur Geirharðsson, en fram að því hafði hljómsveitin notast við trommuheilann Elísabetu I. Egill Lárusson gekk svo í hlómsveitina sem söngvari og þannig skipuð var hún lengst af.
Taugadeildin var undir miklum áhrifum frá breskum póst-pönk hljómsveitum eins og Joy Division, Gang of Four og Pop Group.
Taugadeildin lék á mörgum hljómleikum vorið 1981 við vaxandi vinsældir, meðal annars á Hótel Borg. Taugadeildin spilaði í Laugardalshöllinni tvisvar sinnum, í síðara skiptið á tónleikunum Annað hljóð í strokkinn, með Þey, Fræbbblunum, Baraflokknum og mörgum fleiri hljómsveitum.
Haustið 1981 kom út fjögurra laga plata með hljómsveitinni á vegum Fálkans. Taugadeildin hætti störfum um svipað leyti. Árni Daníel gekk síðan í Q4U en Óskar stofnaði Mogo Homo.