Q4U
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Q4U var íslensk pönkhljómsveit, sem stofnuð var veturinn 1980-1981. Upphaflegir meðlimir voru Elínborg Halldórsdóttir (Ellý) söngkona, Berglind Garðarsdóttir (Linda) söngkona, Steinþór Stefánsson gítarleikari, Gunnþór Sigurðsson bassaleikari, Helgi trommari og Már hljómborðsleikari. Helgi hætti fljótlega og Már einnig. Í stað Helga kom Kormákur Geirharðsson.
Hljómsveitin æfði og spilaði fjölmörg lög og kom fram á mörgum hljómleikum. Meðal annars hitaði hún upp fyrir hljómsveitina The Fall á Hótel Borg haustið 1981. Um vorið kom hljómsveitin fram í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík og vakti þar mikla athygli fyrir spennandi útlit og tónlist.
Þessi útgáfa hljómsveitarinnar lognaðist út af skömmu síðar. Sama vor fór Ellý að vinna með Árna Daníel Júlíussyni í hljómsveitinni Handan grafar. Þessi samvinna leiddi til þess að Gunnþór Sigurðsson kom til liðs við Ellý og Árna og Q4U nafnið var endurreist. Óðinn Guðbrandsson úr Taugadeildinni var ráðinn gítarleikari en í stað trommuleikarans Kormáks var ráðinn trommuheilinn Elísabet II (TR-808 trommuheili frá Roland). Gunnþór lék á bassa en Árni Daníel á hljómborð.
Óðinn hætti um haustið og Danny Pollock, sem áður hafði verið gítarleikari í Utangarðsmönnum, tók við hlutverki hans. Þannig skipuð tók hljómsveitin upp sex laga plötuna Q1. Platan kom út vorið 1983 og skömmu síðar gekk Kormákur aftur til liðs við hljómsveitina. Þannig skipuð tók hljómsveitin upp fjögur lög í hljóðveri Labba í Mánum, Glóru, en hætti síðan störfum.
Hljómsveitin kom aftur saman sumarið 1996, lék á tónleikum og kom fram í sjónvarpi. Um haustið var gefin út geisladiskurinn Q2 með 34 lögum hljómsveitarinnar og tengdra hljómsveita, T42 og Þetta er bara kraftaverk. Í þessari útgáfu hljómsveitarinnar voru Ellý, Gunnþór, Árni Daníel, Ingólfur Júlíusson á gítar og Gummi úr Tappa Tíkarrass á trommur.
[breyta] Útgefið efni
Q1 (Gramm 12 1983)
Q2 (Norður og niður 1996)