Viktoríuvatn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Viktoríuvatn er eitt af stóru vötnunum í Afríku. Það er 68.870 ferkílómetrar að flatarmáli og annað stærsta stöðuvatn Jarðarinnar að umfangi, en þar sem það er tiltölulega grunnt er það ekki nema sjöunda stærsta vatn heims miðað við rúmmál og inniheldur 2.760 rúmkílómetra af vatni. Viktoríuvatn er upptök lengstu þverár Nílarfljóts, Hvítu Nílar. Vatnið liggur á hásléttu í vesturhluta Sigdalsins mikla og er undir stjórn Tansaníu, Úganda og Kenýa.
Í vatninu eru meira en þrjú þúsund eyjar sem margar eru byggðar. Þar á meðal eru Sseseeyjar í Úganda í norðvesturhluta vatnsins, sem eru vinsæll viðkomustaður ferðamanna.