Aðventa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Aðventa (úr latínu: Adventus - „koman“ eða „sá sem kemur“) er í Kristni fjórir síðustu sunnudagarnir fyrir jóladag. Ef jóladag ber upp á sunnudegi verður hann fjórði sunnudagurinn í aðventu. Fyrsti sunnudagur í aðventu er jafnframt fyrsti dagur nýs kirkjuárs í Vesturkirkjunni (í Austurkirkjunni hefst kirkjuárið 1. september).
Í mörgum löndum er haldið upp á aðventuna með aðventukrönsum sem bera fjögur kerti, eitt fyrir hvern sunnudag aðventunnar. Á síðari árum hefur líka orðið algengt að kveikja á aðventustjökum frá fyrsta sunnudegi í aðventu.
Aðventan fellur að hluta til saman við jólaföstu sem í Austurkirkjunni hefst 15. nóvember (sem jafngildir 28. nóvember í gregoríska tímatalinu) en annars staðar á þeim sunnudegi sem næstur er Andrésarmessu 30. nóvember og stendur til jóla.