Alcoa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alcoa er einn stærstu álframleiðenda heims með starfsstöðvar í 43 löndum víðsvegar um heiminn og um 131 þúsund starfsmenn. Fyrirtækið var stofnað árið 1888 og eru höfuðstöðvar þess í Pittsburgh í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum. Alcoa er eitt þeirra 30 fyrirtækja sem eru í Dow Jones-vísitölunni. Árið 2006 tilkynnti fyrirtækið methagnað upp á 160 miljarða króna, mesta hagnað fyrirtækisins í 118 ára sögu þess.[1]
Efnisyfirlit |
[breyta] Sagan
Alcoa var stofnað árið 1888 í kjölfar uppgvötunnar Charles Martin Hall árið 1886 sem, þá aðeins 23 ára gamall, fann leið til að bræða ál. Þetta gerði hann á sama tíma og Paul Héroult var að þróa samskonar vinnsluaðferð í Frakklandi. Aðferðin er nefnd eftir þeim, Hall-Héroult-aðferðin. Aðferð þeirra er enn í dag notuð við álframleiðslu.
[breyta] Alcoa á Íslandi
Alcoa rekur fyrirtækið Alcoa Fjarðaál sf. á Íslandi, en álver fyrirtækisins á Reyðarfirði er fyrsta álverið sem Alcoa reisir í rúm 20 ár. Til þess að sjá álverinu fyrir orku hefur verið byggð Kárahnjúkavirkjun og hafa staðið miklar deilur um hana. Bókin Draumalandið - sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð sem kom út 2006 gagnrýnir bæði virkjunina og fyrirtækið Alcoa fyrir að framleiða hergögn. Þeim ásökunum vísaði fyrirtækið á bug á sínum tíma.[2]
[breyta] Heimildir
- ↑ Methagnaður hjá Alcoa á nýliðnu ári. Skoðað 20. janúar, 2007.
- ↑ Segir Alcoa ekki framleiða hergögn. Skoðað 20. janúar, 2007.