Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bæheimur sýndur sem hluti af Tékklandi
Bæheimur (tékkneska: Čechy, þýska: Böhmen) er hluti Tékklands og nær yfir um tvo þriðju hluta landsins (hinir hlutarnir eru Moravía og Sílesía). Bæheimur var áður sérstakt konungsríki með Prag sem höfuðborg og hluti af hinu Heilaga rómverska ríki.