Bláæð
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bláæðar flytja súrefnissnautt blóð frá háræðum um líkamann og til hjartans. Lungnabláæðin er þar undanskilin en hún flytur súrefnisríkt blóð frá lungum til hjartans. Þrýstingur er minni í bláæðum en í slagæðum og eru æðaveggir bláæða því almennt þynnri. Í bláæðum eru lokur sem hindra það að blóðið renni tilbaka í æðunum sökum mismunar á þrýstingi.