Drottning Ástralíu
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Drottning Ástralíu er Elísabet II. Þó svo að hún sé einnig Drottning Bretlands og fleiri ríkja er embætti drottningar Ástralíu alveg sjálfstætt embætti og hefur verið síðan 1986, þegar Ástralía sleit öll sín formlegu stjórnartengsl við Bretland árið 1986. Titillinn Drottning Ástralíu hefur verið í notkun síðan 1973 þegar lögum frá árinu 1953 um titil drottningar var breytt. Fyrir breytinguna var titillinn:
- Elísabet önnur, fyrir náð guðs af Bretlandi, Ástralíu og öðrum svæðum hennar Drottning, höfuð samveldisins, verndari trúarinnar.
- eða á ensku: Elizabeth the Second, by the Grace of God of the United Kingdom, Australia and Her other Realms and Territories Queen, Head of the Commonwealth, Defender of the Faith.
Eftir breytinguna 1973 hefur titillinn verið:
- Elísabet önnur, fyrir náð guðs drottning Ástralíu og öðrum svæðum hennar, höfuð samveldisins
- eða á ensku: Elizabeth the Second, by the Grace of God Queen of Australia and Her other Realms and Territories, Head of the Commonwealth.
Samveldið sem átt er við er ekki Samveldið Ástralía (eins og landið heitir formlega) heldur Breska samveldið. Ein helsta breytingin, fyrir utan að taka Bretland út úr titlinum, er sú að hún er ekki lengur nefnd „verndari trúarinnar“ í Ástralíu, en það er hún í Bretlandi. Þetta er vegna þess að í Ástralíu er engin ríkiskirkja, ólíkt Bretlandi þar sem enska biskupakirkjan er ríkiskirkja. Í því samhengi er merkilegt að samkvæmt áströlskum lögum (líkt og þeim bresku) verður þjóðhöfðinginn að vera afkomandi Soffíu af Hanover, mótmælandi og ekki hafa gifst kaþólikka. Þetta segja sumir að stangist á við önnur lög í landinu þar sem kveðið er á um að algjört trúfrelsi ríki.