Eimskipafélag Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|
Gerð: | Almenningshlutafélag (ICEX: HFEIM) |
---|---|
Stofnað: | 17. janúar 1914 |
Staðsetning: | Reykjavík, Ísland |
Lykilmenn: | Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Eggert Magnússon, stjórnarmaður Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri |
Fjöldi starfsmanna: | 1.300, þar af um 450 erlendis |
Starfsemi: | Flutningaþjónusta |
Vefslóð: | www.eimskip.is |
Eimskipafélag Íslands er íslenskt skipafélag sem rekur flota flutningaskipa. Félagið var stofnað 17. janúar árið 1914 og keyptu mjög margir Íslendingar stofnhluta í félaginu í upphafi, svo það var kallað „óskabarn þjóðarinnar“. Félagið hóf reglulegar siglingar árið 1915 með skipinu Gullfossi.
Undirbúningur að stofnun félagsins hófst árið 1912 og mynduð var bráðabirgðastjórn undir forystu Thors Jensens sem hóf undirbúning að hlutabréfasöfnun og kaupum á skipi. Um 15% landsmanna, um 14.000 manns, gerðust stofnfélagar í félaginu auk Vestur-Íslendinga og landsjóðs. Fyrsti formaður stjórnar var Sveinn Björnsson, síðar forseti Íslands. Tvö ný skip voru keypt fyrir félagið; Gullfoss og Goðafoss, bæði smíðuð í Kaupmannahöfn. Gullfoss kom til landsins 16. apríl 1915.
Hlutur Vestur-Íslendinga var árið 1964 lagður í sérstakan sjóð, Háskólasjóð, og því komið þannig fyrir að arður af hlutabréfunum rynni til Háskóla Íslands en stjórn Eimskipafélagsins færi með þau atkvæði sem hlutabréfin fólu í sér. Með þessum hætti, og með þeirri reglu að einungis skyldi kosið um helming stjórnar á hverjum aðalfundi, tókst hópi hluthafa sem áttu minnihluta í Eimskipafélaginu að halda í stjórn þess um áratuga skeið. Um leið var félagið mjög umsvifamikið á íslenskum fyrirtækjamarkaði og tengdist öðrum stórum fyrirtækjum eignaböndum. Eimskipafélagið varð þannig ein af stoðum kolkrabbans svokallaða.