Einar Benediktsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Einar Benediktsson (fæddur 31. október 1864 – látinn 21. janúar 1940) var skáld, ritstjóri, lögfræðingur, embættis- og athafnamaður. Einar hefur oft verið nefndur athafnaskáld og talinn í hópi nýrómantískra skálda. Málshátturinn „Aðgát skal höfð í nærveru sálar” er hafður eftir Einari.
[breyta] Ævi og ferill
Faðir Einars var Benedikt Sveinsson, alþingismaður og sýslumaður og móðir hans hét Katrín Einarsdóttir, húsmóðir. Einar gekk í Lærða Skólann í Reykjavík þaðan sem hann varð stúdent 1884. Hann fór því næst til Kaupmannahafnar og útskrifaðist sem lögfræðingur úr Hafnarháskóla 1892.
Einar stofnaði fyrsta dagblað Íslands, Dagskrá, árið 1896, sem studdi Heimastjórnarflokkinn, og var sjálfur ritstjóri þess í tvö ár. Hann átti þátt í stofnun Landvarnarflokksins árið 1902 og gaf út blaðið Landvörn samhliða því. Einar átti þátt í því að koma á laggirnar fyrstu loftskeytastöð landins árið 1906. Hann kom einnig að útgáfu blaðanna Þjóðin (1914-15), Þjóðstefna (1916-17) og Höfuðstaðurinn (1916-17).
Einar var mikill áhugamaður um virkjun fallvatna og stofnaði ásamt öðrum Fossafélagið Títan 1914 til athugunar á því hvort arðbært væri að byggja virkjanir við Þjórsá. Ekkert varð úr þeim fyrirætlunum fyrr en um hálfri öld seinna þegar Búrfellsvirkjun var byggð.
Á árunum 1907-21 ferðaðist Einar mikið. Hann fór til Noregs, Edinborgar í Skotlandi, sneri aftur til Kaupmannahafnar (1908-10) en eyddi svo sjö árum í London (1910-17) áður en hann fór enn aftur til Kaupmannahafnar (1917-21), þess í milli hafði hann stuttar viðkomur á Íslandi.
Hann sneri endanlega aftur heim til Íslands 1921 og bjó í Reykjavík næstu árin, þó svo að hann hafi oft verið langdvölum erlendis, m.a. í Þýzkalandi, á Spáni og í Norður-Afríku. Þá lét hann fara fram rannsóknir á námum í Miðdal, til þess að skoða möguleikana á málmvinnslu og sementsframleiðslu. Síðustu átta árum ævi sinnar eyddi Einar í Herdísarvík á Reykjanesi. Hann dó þar 1940, og var grafinn í heiðursgrafreit á Þingvöllum.
Stytta af Einari eftir Ásmund Sveinsson stendur á Miklatúni, almenningsgarði í Reykjavík.
Veitingarstaðurinn Einar Ben við Ingólfstorg er skírður í höfuðið á Einari.
Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, gaf út ævisögu Einars í þremur bindum á árunum 1997-2000.
[breyta] Helstu verk
- Sögur og kvæði (1897)
- Pétur Gautur (1901) (Þýðing á leikriti Henrik Ibsen)
- Hafblik (1906) (Kvæði)
- Hrannir (1913) (Kvæði)
- Vogar (1921) (Kvæði)
- Hvammar (1930) (Kvæði)