Einar Kárason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Einar Kárason (f. 24. nóvember 1955) er íslenskur rithöfundur og ljóðskáld. Hann byrjaði á því að birta ljóð í tímaritum undir lok áttunda áratugarins, en fyrsta skáldsagan hans, Þetta eru asnar Guðjón, kom út árið 1981. Árið 1983 sló hann svo eftirminnilega í gegn með skáldsögunni Þar sem djöflaeyjan rís sem varð fyrsta bókin í þríleik um líf alþýðufjölskyldu í Reykjavík frá stríðsárunum. Eftir „Djöflaeyjunni“ hefur verið gert vinsælt leikrit og kvikmynd eftir Friðrik Þór Friðriksson (1996).
[breyta] Verk
[breyta] Skáldsögur
- Þetta eru asnar Guðjón, 1981
- Þar sem djöflaeyjan rís, 1983
- Gulleyjan, 1985
- Fyrirheitna landið, 1989
- Heimskra manna ráð, 1992
- Kvikasilfur, 1994
- Norðurljós, 1998
- Óvinafagnaður, 2001
- Stormur, 2003