Eiríkur Magnússon prestahatari
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eiríkur II Magnússon Prestahatari: (1268 - 1299) var konungur Noregs á árunum 1280-99.
Eiríkur kom til ríkis 1280 eftir föður sinn, Magnús VI lagabæti. Hann hélt verndarhendi yfir morðingjum Eiríks V glippings Danakonungs og herjaði á strendur Danmerkur frá 1289. Móðir Eiríks Ingibjörg, var dóttir Eiríks IV plógpenings og átti arf eftir hann sem samið var um 1297 og Eiríkur fékk greiddan.