Eldkeila
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eldkeila er hátt, keilulaga eldfjall samansett úr storknuðu hrauni og eldfjallaösku, þessi fjöll eru brött því hraunið sem myndaði þau var seigfljótandi og harðnaði því skammt frá gígnum. Sé hraunið þunnfljótandi verður keilan flatari og kallast þá dyngja.
Eldkeilur á Íslandi eru Snæfellsjökull, Eyjafjallajökull og Öræfajökull.