Eyjahaf
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eyjahaf (gríska: Αἰγαῖον Πέλαγος; tyrkneska: Ege Denizi) er hafsvæði í austanverðu Miðjarðarhafi á milli Grikklands og Anatólíuskagans. Það tengist Marmarahafi og Svartahafi um Dardanellasund og Bosporussund. Í suðri afmarka Krít og Ródos hafið frá meginhluta Miðjarðarhafs.