Flokksræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flokksræði er tegund stjórnarfars þar sem er flokkakerfi en einn stjórnmálaflokkur myndar ríkisstjórn og engir aðrir flokkar koma fulltrúum sínum í valdastöður, ef þeir eru þá leyfðir. Í flestum tilvikum eru aðrir flokkar einfaldlega bannaðir. Í slíkum ríkjum verður þingið í reynd valdalaus stofnun og hin raunverulegu stjórnmálaátök fara fram innan flokksins, hjá miðstjórn hans eða á flokksþingum.