Frank-Walter Steinmeier
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Frank-Walter Steinmeier (fæddur 5. janúar 1956 í Detmold, Nordrhein-Westfalen) er þýskur stjórnmálamaður í sósíaldemókrataflokknum (SPD).
Frá nóvember 2005 er hann utanríkisráðherra Þýskalands, en frá 1999 til 2005 var hann ráðuneytisstjóri hjá kanslaraembættinu.
[breyta] Menntun og störf
Steinmeier fæddist 1956 í Detmold í sambandslandinu Nordrhein-Westfalen, en faðir hans var smiður. Eftir stúdentspróf árið 1974 í Blomberg gengdi hann herþjónustu í tvö ár eða þangað til hann hóf nám í lögfræði og síðar stjórnmálafræði við Justus-Liebig háskólann í Gießen, sem hann lauk 1986. Hann var frá því í menntaskóla meðlimur ungliðahreyfingar sósíaldemókrataflokksins.
Árið 1991 varði hann doktorsritgerð sína í lögfræði, sem bar heitið „Borgarar án þaks – milli skyldu til framfærslu og réttar á lífsrými; venja og viðhorf opinberrar íhlutunar við hindrun og útrýmingu húsnæðisleysis“.
Sama ár gerðist hann ráðgjafi í fjölmiðlunarrétti við forsætisráðuneyti Neðra-Saxlands í Hannover. Tveimur árum seinna tók hann við embætti skrifstofustjóra hjá Gerhard Schröder, sem á þessum tíma var forsætisráðherra Neðra-Saxlands.
Eftir að ljóst varð árið 1998 að Schröder yrði kanslari ákvað Steinmeier að fylgja honum í ríkisstjórn þýska sambandslýðveldisins og 1999 var hann orðinn ráðuneytisstjóri hjá kanslaraembættinu.
Steinmeier var einn af nánustu samstarfsmönnum Schröders og hefur verið lýst sem manninum á bakvið tjöldin. Þannig gerði hann mikilvægar framkvæmdaáætlanir, t.d. í ellilífeyris- og heilbrigðismálum, og tók þátt í Agenda 2010 og umfangsmiklum skattalagabreytingum.
13. október 2005 varð ljóst að hann yrði utanríkisráðherra og tók hann formlega við embættinu 22. nóvember 2005 í ríkisstjórn Angelu Merkels.
[breyta] Fjölskyldulíf
Steinmeier er giftur og á eina dóttur.