Wikipedia:Gæðagrein
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
|
Gæðagrein er grein sem hefur eftirfarandi einkenni:
- Hún er dæmi um vandaða grein.
- Hún er vel skrifuð, rétt og laus við staðreyndarvillur, skrifuð út frá hlutlausu sjónarmiði og stöðug. Lesa má nánar um kröfurnar sem gerðar eru til gæðagreina í greininni Hvernig á að skrifa góða grein. Sjá einnig fullkomnu greinina og handbókina. Í grófum dráttum eru kröfurnar þessar:
- (a) „vel skrifuð“ þýðir að greinin er skrifuð á góðri íslensku og er laus við stafsetningar- og málfræðivillur;
- (b) „rétt og laus við staðreyndarvillur“ felur m.a. í sér að fullyrðingar greinarinnar eru sannreynanlegar
- (d) „skrifuð frá hlutlausu sjónarmiði“ þýðir að hlutleysi greinarinnar er óumdeilt og fullyrðingar greinarinnar eru réttar (sjá hlutleysisregluna); og
- (e) „stöðug“ þýðir að greinin tekur ekki miklum breytingum frá degi til dags og ekki er barist um hana í breytingastríði.
- Framsetning gæðagreina er í samræmi við það sem fram kemur í Handbókinni, t.d. hefur gæðagrein:
- (a) stuttan inngang, sem lýsir öllum meginatriðum viðfangsefnisins og undirbýr lesandann fyrir nánari umfjöllun í köflunum sem fylgja, og
- (b) viðeigandi skiptingu efnis í kafla og undirkafla.
- Myndir eru ekki skilyrði þess að grein komist í flokk gæðagreina. Á hinn bóginn verður meðferð mynda í gæðagreinum að vera til sóma, hafi þær myndir á annað borð. Í gæðagreinum eru myndir þar sem við á, með viðeigandi og lýsandi skýringartexta. Myndir mega ekki vera of margar miðað við lengd greinar og verða að vera lausar undan höfundarrétti.
- Gæðagreinar þurfa ekki að vera mjög langar og eru alla jafnan styttri en úrvalsgreinar, þær fjalla um efnið á hnitmiðaðan hátt og eru án ónauðsynlegra útúrdúra. Gæðagrein má þó ekki vera stubbur.
[breyta] Munurinn á gæðagrein og úrvalsgrein
Meginmunurinn á gæðagrein og úrvalsgrein er sá að gæðagrein er góð grein en úrvalsgrein er framúrskarandi. Þá gerir gæðagrein efni sínu góð skil en úrvalsgrein gerir efninu tæmandi skil. Gera má ráð fyrir að síðarnefndi munurinn endurspeglist að einhverju leyti í lengd greina og að gæðagreinar séu alla jafnan styttri en úrvalsgreinar. Þó er vert að benda á að engin nauðsynleg tengsl eru milli lengdar greinar og þess hve vel hún gerir efninu skil.