Gorkúla
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
|
|||||||||||||||
Bovista nigrescens |
|||||||||||||||
|
Gorkúla (fræðiheiti: Bovista nigrescens) er ætisveppur sem algengt er að finna á túnum og í görðum. Meðan kúlan er ung er hún hvít í gegn, kúlulaga og stinn viðkomu. Á því stigi er hún kölluð merarostur og er ágætur matsveppur. Eftir því sem hún eldist verður hún græn að innan og heitir þá gorkúla þar til hún verður að lokum dökkbrún og þur og gróin eins og ryk innan í henni. Á því stigi nefnist hún kerlingareldur.