Guðmundur Ólafsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Guðmundur Ólafsson (1652 - 1695) var fornritafræðingur. Hann fæddist að Undirfelli í Austur-Húnavatnssýslu. Hann fluttist ungur til Svíþjóðar og vann þar að þýðingum íslenskra fornrita á sænsku og latínu, sá og um útgáfur nokkurra fornrita. Hann tók saman íslenskt málsháttasafn, sem prentað var í Uppsölum 1930 og nefndist: Thesaurus Adagiorum. Í handritasöfnum í Svíþjóð eru varðveittar miklar uppskriftir með hendi Guðmundar. Bróðir hans, Helgi, fékkst við söfnun íslenskra handrita handa fornritadeild Svíakonungs, og varð vel ágengt, að talið er.