Henri af Lúxemborg
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Henri stórhertogi (f. 16. apríl 1955) er þjóðhöfðingi Lúxemborgar og tók við þeirri stjórn af föður sínum Jean stórhertoga árið 2000. Móðir Henris er Josephine-Charlotte, prinsessa frá Belgíu. Hann á fjögur systkini.
[breyta] Fjölskylda
Henri giftist þann 14. febrúar 1981 kúbverskri konu að nafni Maria Teresa Mestre y Batista. Þau eiga fimm börn:
- Guillaume Jean Joseph Marie krónprins af Lúxemborg (f. 1981)
- Félix Léopold Marie Guillaume prins af Lúxemborg (f. 1984)
- Louis Xavier Marie Guillaume prins af Lúxemborg (f. 1986)
- Alexandra Joséphine Teresa Charlotte Marie Wilhelmine prinsessa af Lúxemborg (f. 1991)
- Sébastien Henri Marie Guillaume prins af Lúxemborg (f. 1992)