Linköping
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Linköping er borg í sveitarfélaginu Linköping kommun í Suður-Gautlöndum í Svíþjóð. Sveitarfélagið hefur um 136.000 íbúa en borgin 96.500 (2006). Bærinn stendur við Stångån, rétt áður en hún rennur í stöðuvatnið Roxen. Aðalatvinnuvegur í Linköping er iðnaður, en þar eru meðal annars Saab-verksmiðjur og Nokia hefur þar yfir 1000 manns í vinnu.
[breyta] Saga
Elsti hluti dómkirkjunnar í Linköping er frá 12. öld en kaþólski skólinn í bænum var stofnaður 1266 og er því sagður elsti sinnar tegundar í Svíþjóð. Vreta-klaustrið var stofnað 1128.
Fram til ársins 1928 var bærinn lítill en þegar Saab byggði flugavélasmiðjur sínar í bænum stækkaði hann ört. Í dag er borgin háskólasetur og eru alls 26.500 stúdentar við nám í Háskólanum í Linköping, Linköpings universitet.