Ljósanótt
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ljósanótt er hátíð, sem árlega er haldin í Reykjanesbæ fyrstu helgi septembermánaðar. Hátíðin er kennd við ljós þau sem notuð eru til að lýsa upp Keflavíkurberg, sem er sá hluti Hólmsbergs, sem snýr að víkinni, Keflavík. Hátíðin var fyrst haldin haustið 2000. Ljósanótt er sannkölluð menningarhátíð. Haldnar eru sýningar af flestu tagi sem mögulegt er, tónleikar og margs konar samkomur. Verslanir hafa ýmiss konar tilboð og margt er sér til gamans gert. Hápunktur hátíðarinnar er á laugardagskvöldinu, en þá er samkoma á Myllubakka, þar sem þekktar hljómsveitir skemmta á meðan dimmir. Þegar myrkur er skollið á eru ljósin á Berginu kveikt og síðan er flugeldasýning. Bergið blasir við frá Myllubakka og sjá áhorfendur því vel þegar ljósin eru kveikt.
Frumkvöðull Ljósanætur var Steinþór Jónsson, bæjarstjórnarmaður og hótelstjóri á Hótel Keflavík. Þegar hann hafði kynnt hugmynd sína árið 2000, brettu menn upp ermar og hrintu henni í framkvæmd og síðan hefur vegur hennar farið vaxandi. Haldin er samkeppni um lag Ljósanætur og er lagið flutt á hátíðinni hverju sinni.