Menning
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Menning er samsafn hegðunarmynstra sem fyrirfinnast í ákveðnum samfélögum, og gildishlaðinna tákna sem gefa hegðuninni ákveðna merkingu eða tilgang. Margar mismunandi skilgreiningar eru til á menningu. Mannfræðingar nota hugtakið til að vísa til þeirrar viðleitni mannsins að skipa lífsreynslu sinni í flokka eða mynstur, og að tjá hana á skipulegan máta. Menning hefur einnig verið skilgreind sem „lífsmynstur heilla samfélaga“[1]. Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur einnig lagt til að menning sé skilgreind sem:
„... samsafn þeirra trúarlegu, efnislegu, vitrænu og tilfinningalegu þátta sem einkenna hvert samfélag eða samfélagshóp. Listir og bókmenntir teljast til menningar, en einnig lífsstíll, sambúðarform, mannleg gildi, hefðir og skoðanir.“[2]
[breyta] Heimildir
- ↑ Jary, D. and J. Jary. 1991. The HarperCollins Dictionary of Sociology, p. 101.
- ↑ UNESCO. 2002. Universal Declaration on Cultural Diversity.