Mól
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mól (tákn: mol) er mælieining fyrir efnismagn og ein af sjö grunneiningum SI kerfisins. Eitt mól er skilgreint sem sá fjöldi agna sem samsvarar fjölda frumeinda í 12 g af kolefnissamsætunni 12C. Þessi fjöldi er kallaður Avogadrosar tala eða Loschmidts tala og hann er u.þ.b. 6,0221415 · 1023. Lengi vel voru eðlisfræðingar og efnafræðingar ósammála um hvernig bæri að skilgreina mól. Samtök eðlisfræðinga skilgreindu mól sem þann fjölda súrefnisatóma sem höfðu massann 16 g í gasi af 16O, en samtök efnafræðingar skilgreindu mól sem þann fjölda súrefnisatóma sem hefði massann 16 g í náttúrulegu súrefni. Þar sem súrefni kemur fyrir á jörðinni sem fleiri en ein samsæta var nokkur munur á þessum skilgreiningum. Sá ágreiningur hefur nú verið lagður til hliðar og báðar fylkingarnar styðjast við skilgreininguna sem getur í upphafi greinarinar.