Mac OS X
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mac OS X er nýjasta kynslóð Mac OS stýrikerfisins frá Apple Computer, það var sett á á almennan markað árið 2001 en þá var Mac OS X Server þegar í nokkurri notkun.
Mac OS X er annað Unix-lega stýrikerfi Apple. Það fyrsta var A/UX kerfið sem Apple þróaði snemma á tíunda áratugnum til að keyra á netþjónum sem fyrirtækið framleiddi, það átti líka hlut í þróun MkLinux en það kerfi keyrði aldrei á vélum seldum frá fyrirtækinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Uppbygging
Apple hefur yfirumsjón með þróun kerfisins, en hlutar þess koma úr fjölmörgum áttum. Meðal annars er allnokkuð notað úr FreeBSD, NetBSD, OpenBSD og GNU kerfinu á Unix-hliðinni en margt er ættað úr NeXTSTEP og svo vitaskuld úr eldri útgáfum Mac OS.
[breyta] XNU
Kjarni OSX, XNU, er blendingskjarni eða breyttur örkjarni byggður á nokkurs konar samsuðu Mach kjarnans frá Carnegie–Mellon háskóla og FreeBSD kjarnans, Mach hlutinn sér meðal annars um verndað minni, sýniminni umsjón með keyrðum forritum ofl. á meðan BSD ættaði hlutinn sér um netkerfið, sýniskráarkerfið ofl.
[breyta] Darwin
Darwin er grunnur Mac OS X og er byggður að mestu leiti á FreeBSD og Mach. Það er gefið út sem frjáls hugbúnaður af Apple Computer. Ýmsir hlutar kerfisins eru fengnir úr öðrum kerfum og þá aðallega BSD-kerfum og GNU. Darwin er hægt að keyra sjálfstætt á fleiri örgjörvum en PPC-örgjörvunum sem Apple notast við í Macintosh-tölvur sínar, eins og t.d. Intel-örgjörvum. Darwin keyrir svo undir örkjarna sem heitir XNU (XNU is not Unix).
[breyta] Aqua
Myndrænt notendaviðmót Mac OS X byggir á Aqua sem aftur byggist á PDF-tækni Adobe. Flestir notendur kerfisins nota nær eingöngu Aqua við sín störf.
[breyta] Hlutar kerfisins
[breyta] Kerfishlutir
- AppleScript — Skriftumál fyrir stýrikerfið sem byggir á myndrænu notendaumhverfi kerfisins.
- Dashboard — Kerfishluti sem sýnir ýmiskonar tól byggð á XHTML, CSS og JavaScript sem hægt er að fela og sýna með Exposé-tækninni.
- Exposé — Með Exposé er hægt að opna glugga og forrit sem eru í gangi á hraðvirkan hátt. Þetta er sérstaklega hentugt þegar mjög margir gluggar eru opnir í einu.
- Finder — Skráastjóri Mac OS X
- Kerfisstillingar — Grunnstillingar stýrikerfisins. Svipar til Control Panel í Microsoft Windows.
- Leturbók — Forrit til að hafa umsjón með leturgerðum.
- OpenGL — Opinn staðall fyrir stafræna þrívíddartækni og er í flestum öðrum stýrikerfum.
- QuickTime — Forrit til að spila myndskeið og hljóð. Er einnig til í s.k. Pro-útgáfu sem þarf að borga fyrir, auk Windows-útgáfu.
- Spotlight — Notað til að leita að texta í skrám og annars staðar í kerfinu.
- X11 — Í Mac OS X er hægt að keyra grafísk forrit sem byggð eru á X11 með Aqua-kerfinu.
[breyta] Notendaforrit
- Chess — Skákleikur. Grafískt notendaviðmót fyrir GNU Chess.
- DVD Player — DVD-spilari.
- Forsýn — Myndrýniforrit með nokkrum myndvinnslumöguleikum. Það styður flestar gerðir mynda auk PDF-skjala, svo eitthvað sé nefnt.
- iChat — Spjallforrit sem notast við AOL og Jabber-tækni.
- Image Capture — Forrit til að ná ljósmyndum og myndskeiðum af stafrænum myndavélum.
- iSync — Forrit til að samstilla póstfangaskrá og iChat svo eitthvað sé nefnt við farsíma og lófatölvur.
- iTunes — Tónlistarspilari með innbyggðri netverslun til að versla tónlist. Styður m.a. MP3 og AAC.
- Mail — Póstforrit
- Póstfangaskrá — Heldur utan um heimilisföng og upplýsingar um einstaklinga og fyrirtæki.
- Safari — Vefskoðari sem byggir á KHTML-vél KDE-hópsins.
- TextEdit — Lítill textaritill ætlaður fyrir grundvallarvinnslu á texta.
[breyta] Íslenskt mál í Mac OS X
Snemma kom í ljós að stuðningur Mac OS X við íslenskt mál var ekki eins og best var á kosið og var það rakið til þess að með tilkomu Mac OS X var farið að nota 8 bita Unicode stafatöflu í stað MacRoman og MacIcelandic stafataflanna sem höfðu verið ríkjandi áður. Þetta olli þeim sem nota íslenskan texta í ýmsum hugbúnaði sem studdi ekki enn Unicode en keyrði þó á Mac OS X nokkrum vandræðum en áður höfðu þeir sem notuðu íslenskt mál á fyrri kerfum þurft að snurfusa kerfið til á ýmsan hátt til að gera sér auðvelt fyrir.
[breyta] Íslenskustuðningur
Öflun ehf. (Apple IMC á Íslandi) brást við þessum vandamálum með því að gefa út viðbót sem látin var fylgja með og var kölluð íslenskustuðningur og lagaði hluta þeirra vandamála sem höfðu skapast vegna skiptingarinnar yfir í nýja stafatöflu. Með útgáfu 10.4 hefur þetta vandamál verið lagað að stórum hluta.
[breyta] Íslensk þýðing
Á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2004 eftir að uppfærsla í útgáfu 10.3.8 var gefin út gaf Öflun ehf. út íslenska þýðingu á ýmsum hlutum kerfisins; Finder, Mail, Kerfisstillingum og iChat, en þýðingin fylgdi með íslenskustuðningnum.
[breyta] Nafnsifjar
Bókstafurinn X í nafninu stendur fyrir töluna 10 í rómverska talnakerfinu og því er er stýrikerfið oft nefnt annað hvort Mac OS ex eða Mac OS tíu en það er oft kallað tían í daglegu tali.
[breyta] Þróunartré Mac OS X
- Þróunarútgáfur — Rhapsody
- Útgáfa 10.0 — Cheetah — 24. mars 2001
- Útgáfa 10.1 — Puma — 25. september 2001
- Útgáfa 10.2 — Jaguar — 24. ágúst 2002
- Útgáfa 10.3 — Panther — 24. október 2003
- Útgáfa 10.4 — Tiger — 29. apríl 2005
[breyta] Tengt efni
- Mac OS
- A/UX
- MkLinux