Mary Shelley
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Mary Shelley (30. ágúst 1797 – 1. febrúar 1851) var enskur rithöfundur sem er einkum þekkt fyrir vísindaskáldsöguna Frankenstein (Frankenstein, or the Modern Prometheus). Hún var dóttir femínistans Mary Wollstonecraft og stjórnleysingjans William Godwin. Hún giftist enska rómantíska skáldinu Percy Bysshe Shelley sem drukknaði eftir sex ára hjónaband.