Menningarkreppa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Menningarkreppa er ástand sem skapast í samfélagi þegar innan ríkjandi menningar- eða siðakerfis koma svo margar nýjar hugmyndir, hugsjónir og breytingar að hið ríkjandi kerfi megnar ekki að melta með sér allt hið nýja. Átök grískrómverskrar menningar og kristni í fornöld, endurreisnartíminn í Evrópu og umbrota- og krepputímar í tengslum við upplýsinguna og iðnbyltinguna eru dæmi um menningarkreppu.
[breyta] Heimild
- Reidar Myhre. Stefnur og straumar í uppeldissögu. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands, 2001. ISBN 9979-847-45-x