Millinafn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Millinafn getur átt við hvaða nafn, sem kemur á milli fyrsta og síðasta nafns. Mismunandi er milli landa og menningarheima hvað nákvæmlega er átt við. Í íslensku eru millinöfn í raun, samkvæmt lögum, einungis nöfn dregin af íslenskum orðstofnum eða sem hafa unnið sér hefð í íslensku máli en hafa ekki nefnifallsendingu og geta komið á milli eiginnafns og föður- móður- eða ættarnafns. Dæmi um slíkt nafn er Helgi Áss Grétarsson.