Morgunblaðið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Morgunblaðið er íslenskt dagblað sem kemur út alla daga vikunnar á Íslandi. Það kom fyrst út 2. nóvember 1913 og hefur verið gefið út af Árvakri hf síðan 1919 og var því þá ritstýrt af Valtý Stefánssyni og Jóni Kjartanssyni.
Upphafsmaður Morgunblaðsins var Vilhjálmur Finsen.
Árið 1994 hóf svo Morgunblaðið útgáfu mbl.is, fréttavefs Morgunblaðsins á internetinu, fyrst allra fréttastofa á Íslandi. Í dag er mbl.is einn vinsælasti fréttavefur landsins.
Morgunblaðið var lengi vel málgagn Sjálfstæðisflokksins og þrátt fyrir að blaðið hafi með tímanum reynt að fjarlægjast flokkadrætti hallar það sér að jafnaði meira til hægri.
[breyta] Tenglar
- Mbl.is Fréttavefur Morgunblaðsins
- Morgunblaðið á Timarit.is, hægt að lesa frá upphafi til 1984