Norður-svæðið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Norður-svæðið (enska: Northern Territory) er svæði í miðjum norðurhluta Ástralíu. Það er fámennast af öllum fylkjum og svæðum Ástralíu með tæpa tvöhundruð þúsund íbua. Þar eru einungis þrjú byggðarlög sem eitthvað kveður að, það eru höfuðborgin Darwin á norðurströndinni, Alice Springs í suðurhluta svæðisins og Katherine aðeins fyrir sunnan Darwin. Upphaflega var Norður-svæðið hluti af nýlendunni Suður-Ástralíu (sem nú er fylki), en 1911 var það tekið af því og gert að sjálfstæðu svæði. Svæðið er mjög harðbýlt, meirihluti þess er þakinn eyðimörk og mjög lítið ræktarland er. Þar eru þó líka sumar af frægustu náttúruperlum Ástralíu, svo sem Uluru (eða Ayres-klettur), sem er líka einn helgasti staður frumbyggja svæðisins og í norðurhluta svæðisins er Kakadu þjóðgarðurinn. Helstu atvinnuvegir svæðisins eru ferðamannaþjónusta og námugröftur.
Áströlsk fylki, svæði og höfuðborgir: | ![]() |
|||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæði Ástralíu | Nýja Suður Wales | Norður-svæðið | Queensland | Suður-Ástralía | Tasmanía | Victoria | Vestur-Ástralía | |
Canberra | Sydney | Darwin | Brisbane | Adelaide | Hobart | Melbourne | Perth | |
Norfolkeyja | Jólaeyja | Kókoseyjar | Kóralhafseyjasvæðið | Heard- og McDonaldeyjar | Ástralska suðurskautssvæðið |