Norðureyjar, Hjaltlandseyjum
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Norðureyjar eru norðurhluti Hjaltlandseyja. Helstu eyjarnar sem teljast til Norðureyja eru Yell, Únst og Fetlar.
Meðal smærri eyja sem teljast til Norðureyja má nefna:
- Muckle Flugga
- Uyea
- Útstakk
- Balta
- Húney
- Haaf Gruney
Norðureyjum á Hjaltlandseyjum, sem hér eru til umfjöllunar, ætti ekki að rugla saman við Norðureyjar þær sem ná yfir Orkneyjar, Hjaltlandseyjar og Fagurey.