Peter Geach
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar |
|
---|---|
Nafn: | Peter Geach |
Fædd/ur: | 29. mars 1916 |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk: | Mental Acts; Logic Matters; Reason and Argument |
Helstu viðfangsefni: | rökfræði, hugspeki, trúarheimspeki |
Áhrifavaldar: | Tómas af Akvínó, Ludwig Wittgenstein |
Hafði áhrif á: | G.E.M. Anscombe |
Peter Thomas Geach (f. 29. mars 1916) er breskur heimspekingur. Hann fæst einkum við heimspekisögu, rökfræði, hugspeki og trúarheimspeki. Hann var kvæntur heimspekingnum Elizabeth Anscombe og áttu þau sjö börn.
Geach er kaþólskur og er kaþólsk trú að mörgu leyti samtvinnuð heimspeki hans. Heimspeki hans er í anda rökgreiningarheimspekinnar en undir miklum áhrifum frá Tómasi af Akvínó. Geach hefur t.a.m. varið þá kenningu að manneskjan sé í eðli sínu skynsemisvera og að hver og einn einstaklingur hafi verið skapaður af guði. Hann vísar á bug tilraunum í anda Darwins til að líta svo á að skynsemin sé ekki eðlislæg manninum heldur hending þróunarinnar sem „sófisma, hlægilegum eða brjóstumkennanlegum“. Hann hafnar kenningum um málgetu dýra.
Geach hafnar bæði þekkingarfræðilegum skilningi sannleikshugtaksins og gagnhyggju um sannleikann, en heldur þess í stað samsvörunarkenningu um sannleikann á lofti í anda Tómasar af Akvínó. Hann heldur því fram að veruleikinn sé einn og óskiptur, grundvallaður í guði sjálfum, sem er endanlegur sanngjöri; guð er sannleikur.
[breyta] Helstu rit
- Mental Acts: Their Content and Their Objects (1957)
- Reference and Generality: An Examination of Some Medieval and Modern Theories (1962)
- God and the Soul (1969)
- Logic Matters (1972)
- Reason and Argument (1976)