29. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feb – Mars – Apr | |||||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La | |||
1 | 2 | 3 | |||||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | |||
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | |||
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | |||
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |||
2007 Allir dagar |
29. mars er 88. dagur ársins (89. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 277 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1787 - Jón Eiríksson, lögfræðingur og konferensráð svipti sig lífi í Kaupmannahöfn.
- 1881 - Bjarndýr var skotið á Látrum við Eyjafjörð og nokkur fleiri um austanvert landið.
- 1930 - Heinrich Brüning var skipaður ríkiskanslari Þýskalands.
- 1943 - Skömmtun á mjólkurafurðum á borð við mjólk, smjör og ost hófst í Bandaríkjunum vegna seinni heimsstyrjaldarinnar.
- 1945 - Síðustu V1-árásir Þjóðverja á England.
- 1947 - Heklugos hófst, hið fyrsta í rúma öld. Gosmökkurinn náði 30 km hæð og barst aska meðal annars til Finnlands og Englands. Gosið stóð í rúmt ár.
- 1951 - Julius og Ethel Rosenberg voru dæmd sek fyrir njósnasamsæri í Bandaríkjunum. Þau voru tekin af lífi tveimur árum síðar.
- 1961 Sett voru lög um launajöfnuð kvenna og karla. Skyldu þau komin til framkvæmda að fullu fyrir 1. janúar 1967.
- 1970 - Henný Hermannsdóttir (þá átján ára) sigraði í keppninni Miss Young International, sem haldin var í Japan.
- 1971 - Kviðdómur í Los Angeles mæltist til þess að Charles Manson yrði dæmdur til dauða fyrir morðið á leikkonunni Sharon Tate, sem gift var Roman Polański leikstjóra.
- 1973 - Síðustu bandarísku hermennirnir yfirgáfu Suður-Víetnam.
- 1982 - Stevie Wonder og Paul McCartney gáfu út smáskífuna „Ebony and Ivory“.
- 1985 - Manni var bjargað úr jökulsprungu sem hann féll í í Kverkfjöllum eftir 32 klukkustundir.
- 1993 - Edouard Balladur varð forsætisráðherra Frakklands.
- 1999 - Dow Jones-vísitalan stóð í 10.006,78 að loknum viðskiptadegi í Wall Street. Þetta var í fyrsta skipti sem vísitalan var yfir 10.000 við lokun kauphallarinnar.
[breyta] Fædd
- 1899 - Lavrentij Beria, sovéskur njósnari (d. 1953).
- 1943 - Eric Idle, gamanleikari og rithöfundur.
- 1943 - John Major, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.
- 1944 - Þórir Baldursson, orgelleikari.
- 1957 - Christopher Lambert, leikari.
- 1964 - Elle Macpherson, fyrirsæta.
[breyta] Dáin
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |