Rembrandt
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rembrandt Harmenszoon van Rijn (15. júlí 1606 – 4. október 1669) var hollenskur listmálari sem var uppi á tímabili sem kallað hefur verið Gullöld Hollands. Hann er einkum þekktur fyrir myndir af fólki, persónusköpun og sterkar andstæður ljóss og skugga. Hann fékkst einnig við gerð prentmynda með ætingu. Hann málaði næstum hundrað sjálfsmyndir sem gefa einstaka mynd af því hvernig hann leit út á ólíkum æviskeiðum.