Serj Tankian
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Serj Tankian (fæddur 21. ágúst 1967) er bandarískur tónlistarmaður af armenskum uppruna og jafnframt söngvari hljómsveitarinnar System of a Down.
[breyta] Ævisaga
Tankian er fæddur í Beirút 21. ágúst 1967 og við 5 ára aldur fluttist hann með foreldrum sínum til Los Angeles í Bandaríkjunum. Þar lagði hann stund á söng- og gítarnám. Eftir að hafa lokið framhaldsskóla lærði hann markaðsfræði. Árið 1993 stofnaði hann hljómsveitina Soil ásamt Daron Malakian félaga sínum. Tveimur árum síðar liðaðist Soil í sundur svo þeir fengu Shavo Odadjian og Andy Khachaturian til liðs við sig svo úr varð System of a Down.
Tankian á eigið útgáfufyrirtæki sem hann kallar Serjical Strike og gefur það út tónlist þeirra sem ekki falla undir mainstream skilgreininguna. Serjical Strike var stofnað í apríl 2001. Hljómsveitir sem hafa verið gefnar út af fyrirtækinu eru meðal annars Bad Acid Trip, Kittens for Christian, Slow Motion Reign og Fair to Midland en fyrsta verkefnið sem var gefið út var samstarfsverkefni Tankian og vinar hans, Arto Tunçboyaçiyan, sem kallast Serart.
Tankian er afar pólistískur en þeir Tom Morello, gítarleikari Audioslave, stofnuðu saman stjórnmálaaflið Axis of Justice (ísl: öxull jafnréttis). Lítið er vitað um einkalíf Tankians en þó er ljóst að hann er grænmetisæta og hefur yndi af ljóðlist. Hann hefur sjálfur gefið út bókina Cool Gardens sem inniheldur ljóðlist hans og hlaut hún mikið lof gagnrýnenda.