Strandfuglar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Hettumáfur (Larus ridibundus)
|
|||||||||
Vísindaleg flokkun | |||||||||
|
|||||||||
|
|||||||||
Sjá grein.
|
Strandfuglar eða fjörufuglar (fræðiheiti: Charadriiformes) er fjölbreyttur ættbálkur fugla sem telur um 350 tegundir sem lifa um allan heim. Flestir strandfuglar lifa nærri vatni og lifa á smádýrum en sumar tegundir eru sjófuglar og aðrar finnast í skógum.
Ættbálknum er oftast skipt í þrjá undirættbálka:
- Vaðfuglar (Charadrii) eru dæmigerðir strandfuglar sem nærast með því að tína fæðu upp úr sandi eða leðju bæði við sjó og vötn.
- Máfuglar (Lari) eru venjulega aðeins stærri fuglar sem veiða fisk á hafi úti. Nokkrar máfategundir og skúmur taka fæðu sína í fjörunni eða með því að ræna aðra fugla og sumir hafa aðlagast lífi inni í landi.
- Svartfuglar (Alcae) lifa við strendur á klettum og „fljúga“ neðansjávar eftir æti.
[breyta] Ættir
- Undirætt: Vaðfuglar (Charadrii)
- Ætt: Fjallatiplur (Thinocoridae)
- Ætt: Pedionomidae
- Ætt: Snípur (Scolopacidae)
- Ætt: Gaukrelluætt (Rostratulidae)
- Ætt: Jókaætt (Jacanidae)
- Ætt: Slíðurnefir (Chionididae)
- Ætt: Trílaætt (Burhinidae)
- Ætt: Tjaldar (Haematopodidae)
- Ætt: Bjúgnefaætt (Recurvirostridae)
- Ætt: Ibidorhynchidae
- Ætt: Lóuætt (Charadriidae)
- Ætt: Pluvianellidae
- Ætt: Krabbametjuætt (Dromadidae)
- Ætt: Trítlar (Glareolidae)
- Undirætt: Máfuglar (Lari)
- Ætt: Máfar (Laridae)
- Ætt: Þernur (Sternidae)
- Ætt: Skúmar (Stercorariidae)
- Ætt: Bakkaskaraætt (Rhynchopidae)
- Undirætt: Svartfuglar (Alcae)
- Ætt: Svartfuglar (Alcidae)