Tófukvæði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tófukvæði er norrænt danskvæði eða vikivaki. „Tófa“ er hér íslenskun á kvenmannsnafninu Tove.
Lagið er að finna á hljómdisknum Raddir sungið af Brynjúlfi Sigurðssyni.
- Tófa situr inni
- leggjum land undir fót
- ól hún barn við Birni
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Ól hún eitt og ól hún tvö
- leggjum land undir fót
- bæði kenndi hún Birni þau
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Hún þorir ekki að fæða
- leggjum land undir fót
- fyrir reiði bræðra
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Hún þorir ekki að fæða
- leggjum land undir fót
- fyrir reiði feðra
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Tekur hún barn og vefur í dúk
- leggjum land undir fót
- og kastar því á strætið út
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Þar kom að einn arkarhrafn
- leggjum land undir fót
- hann tók það hið bjarta barn
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Hrafninn flaug svo víða
- leggjum land undir fót
- sá hann skipið skríða
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Hrafninn sest á siglutré
- leggjum land undir fót
- en barnið féll í greifans kné
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Tekur hann barn og horfir á
- leggjum land undir fót
- lítil fylgja þér móðurráð
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Það sé ég á þínum linda
- leggjum land undir fót
- að þín kann móðirin reyfi að binda
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Það sé ég á þínum lófa
- leggjum land undir fót
- að þín er móðirin Tófa
- á Danamót
- og dans vill hún heyra
- Það sé ég á þínum augum
- leggjum land undir fót
- að þinn er faðirinn greifi
- á Danamót
- og dans vill húnheyra