Vikivaki
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Vikivaki“
Vikivaki er forn hringdans sem stundaður hefur verið á skemmtunum um öll Norðurlönd frá miðöldum til okkar daga. Orðið vikivaki er notað ýmist um dansinn, kvæðin sem sungin eru undir dansinum eða skemmtanir þar sem slíkur dans er stundaður. Þekktasti vikivaki nútímans er eflaust dansinn sem er stiginn á Ólafsvöku í Færeyjum við sagnakvæðið Orminn langa síðustu helgina í júlí ár hvert.
Efnisyfirlit |
[breyta] Kvæðin
Vikivakakvæði hafa yfirleitt viðkvæði en stuðlar og höfuðstafir eru óreglulegir. Á Ólafsvöku stendur einn maður á miðju gólfi og kveður en allir taka undir í viðkvæði.
[breyta] Dansinn
Vikivaki er oft í heimildum einungis kallaður „dans“ og vikivakakvæði „danskvæði“. Vikivaki er hringdans, þar sem þátttakendur haldast í hendur eða hver um axlir annars og stíga tvö dansspor til vinstri og eitt til hægri, með ýmsum breytum, svo sem að stappa í gólfið í áttunda hverju spori. Þegar löng sagnakvæði eru sungin undir er gjarnan stigið fastar í gólfið þegar kemur að dramatískum augnablikum í sögunni.
[breyta] Vikivakar
- Ásukvæði
- Hani, krummi, hundur, svín
- Ormurinn langi
- Ólafur liljurós
- Stjúpmóðurkvæði
- Tófukvæði
- Tunnan valt
[breyta] Annað
- Vikivaki er stiginn í lokaatriði kvikmyndarinnar Dalalíf.