Vífilsstaðir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vífilsstaðir er hjúkrunarheimili Hrafnistu skammt frá Garðabæ sem hýsir um 50 aldraða. Stöðugildi eru 53 og starfsmenn um 80.
[breyta] Saga
Upprunalega byggði Vífill bæinn Vífilsstaði eftir að Ingólfur Arnarson, landnámsmaður Íslands, hafði veitt honum frelsi fyrir fund á öndvegissúlum sínum tveim sem hann hafði varpað frá borði og hugðist byggja sér bæ þar sem þær ráku á land. Vífilsfell er einnig kennt við hann.
Þann 1. september 1910 var spítali fyrir berklasjúklinga byggt á Vífilsstöðum sem Rögnvaldur Ólafsson teiknaði. Eftir að berklasjúklingum fór fækkandi árið 1973 var byrjað að taka á móti öllum öndunarfærasjúklingum. Þar var einnig stórt kúabú, sem lagt var niður árið 1974. Sérstök meðferðardeild fyrir áfengissjúklinga sem tilheyrði Kleppsspítala var stofnuð þar árið 1976. Þeirri deild var lokað 2002.
Rekstur hjúkrunarheimilis fyrir aldraða hófst í byrjun árs 2004 að endurinnréttingu á húsinu loknu. Telst aðstaðan með þvi nútímalegra sem gerist. Hrafnista annast rekstur Vífilsstaða og leigir húsið af ríkinu. Níu af hverjum tíu heimilismanna koma beint af öldrunardeildum LSH, en 10% heimilismanna eru teknir inn samkvæmt hefðbundnum inntökureglum.
Þar starfar prestur sem sinnir sálgæslu og trúarlegri þjónustu við heimilismenn, aðstandendur og starfsfólk.