Ögmundur Jónasson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ögmundur Jónasson (ÖJ) | |
Fæðingardagur: | 17. júlí 1948 (59 ára) |
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
6. þingmaður Suðvesturkjördæmis | |
Flokkur: | Vinstri hreyfingin - grænt framboð |
Nefndir: | Efnahags- og skattanefnd, félags- og tryggingamálanefnd |
Þingsetutímabil | |
1995-1998 | í Reykv. fyrir Alþb. |
1998-1999 | í Reykv. fyrir Óh. |
1999-2003 | í Reykv. fyrir Vg. |
2003-2007 | í Reykv. s. fyrir Vg. |
2007- | í Suðvest. fyrir Vg. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1998-1999 | Þingflokksformaður (Óh.) |
1999- | Þingflokksformaður (Vg.) |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Ögmundur Jónasson (f. 17. júlí 1948 í Reykjavík) er þingflokksformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og formaður BSRB.
Hann útskrifaðist sem stúdent frá menntaskólanum í Reykjavík 1969 og lauk MA-prófi í sagnfræði og stjórnmálafræði frá háskólanum í Edinborg 1974. Hann hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands síðan 1979 og formaður BSRB síðan 1988 og hefur sinnt því starfi ásamt þingmennsku síðan hann var kjörinn á þing.
Ögmundur var kjörinn á Alþingi sem óháður frambjóðandi á lista Alþýðubandalagsins, sat sem slíkur 1995-1998, var formaður þingflokks Óháðra 1998-1999, en hefur verið þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs síðan 1999. Hann hefur, ásamt flokkssystkinum sínum, mótmælt stríðinu í Írak og virkjanaframkvæmdunum við Kárahnjúka.