1000
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
981-990 – 991-1000 – 1001-1010 |
Aldir |
- Sjá einnig greinina um töluna 1000.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- Vorið - Fyrsta kristna kirkja á landinu reist í Vestmannaeyjum, en Ólafur Tryggvason konungur Noregs sendi Gissur hvíta Teitsson og Hjalta Skeggjason með kirkjuviðinn og skyldi hún reist þar sem þeir kæmu að landi.
- Júlí - Hjalti Skeggjason og Gissur Teitsson komu til Alþingis á Þingvöllum til þess að boða kristni. Lá við að þingheimur berðist en þó tókst að stilla til friðar. Á þingi árið áður hafði Hjalti hallmælt Freyju og kallað hana grey (= tík) og var þá heiðnum mönnum nóg boðið.
- Júlí - Kristnitakan: Samþykkt var á Alþingi að Íslendingar skyldu taka kristni í orði kveðnu. Ýmsum heiðnum siðum mátti þó fylgja ef ekki væri hægt að sanna þá á menn, svo sem eins og útburð barna og hrossakjötsát.