ON AMAZON:



https://www.amazon.com/Voice-Desert-Valerio-Stefano-ebook/dp/B0CJLZ2QY5/



https://www.amazon.it/dp/B0CT9YL557

We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Ísland - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Ísland

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Lýðveldið Ísland
Fáni Íslands Skjaldarmerki Íslands
(Fáni Íslands) (Skjaldarmerki Íslands)
Kjörorð: ekkert
Þjóðsöngur: Lofsöngur
Kort sem sýnir staðsetningu Íslands
Höfuðborg Reykjavík
Opinbert tungumál íslenska
Stjórnarfar Lýðveldi
Ólafur Ragnar Grímsson
Geir H. Haarde

Sjálfstæði

undan Danmörku 

 - Heimastjórn 1. febrúar 1904 
 - Fullveldi 1. desember 1918 
 - Lýðveldi 17. júní 1944 

Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)

105. sæti
103.125 km²
2,7%
Mannfjöldi
 • Samtals (Janúar 2008)
 • Þéttleiki byggðar
169. sæti
313,376
3,1/km²
VLF (KMJ)
 • Samtals
 • á mann
áætl. 2005
10.531 millj. dala (135. sæti)
35.546 dalir (5. sæti)
VÞL 0,968 (1. sæti)
Gjaldmiðill króna (ISK)
Tímabelti UTC+0 (enginn sumartími)
Þjóðarlén .is
Landsnúmer 354

Lýðveldið Ísland er ríki á eyjunni Íslandi í Norður-Atlantshafi á milli Grænlands, Færeyja og Noregs. Ísland er um 103.000 km² að stærð; það er önnur stærsta eyja í Evrópu og sú átjánda stærsta í heimi. Á Íslandi búa um það bil 313.000 manns. Höfuðborg landsins er Reykjavík.

Landnámabók segir frá hvernig landnám Íslands hófst kringum árið 874 þegar Ingólfur Arnarson nam hér land, þó aðrir höfðu áður dvalið tímabundið á landinu. Á næstu áratugum og öldum flutti fjöldi fólks til Íslands á tímabili sem nefnt er landnámsöld. Ísland komst með Gamla sáttmála undir vald Noregs árið 1262 og var undir valdi Norðmanna og Dana til ársins 1944, þegar það hlaut fullt sjálfstæði.

Á síðari hluta 20. aldar jókst þjóðarframleiðsla Íslendinga til muna og innviðir og velferðarkerfi landsins efldust. Nú er Ísland þróaðasta land heims, samkvæmt vísitölu SÞ um þróun lífsgæða. Ísland er meðlimur í , NATO, EFTA og EES.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga

Aðalgrein: Saga Íslands

Ísland var, samkvæmt Íslendingabók Ara fróða, fyrst numið af norskum og keltneskum (skoskum og írskum) landnemum undir lok níundu og tíundu aldar. Þar var næstelsta (og það elsta sem enn er starfandi), þjóðþingið, Alþingi, stofnað árið 930.

Ísland var ekki sett undir erlend ríki fyrr en næstum fjórum öldum eftir að það var fyrst numið. Þá fór svo að Noregskonungur náði landinu undir sína krúnu (1262). Síðar varð Ísland svo hluti af danska ríkinu árið 1380.

Ísland fékk stjórnarskrá og takmarkaða heimastjórn árið 1874 á þjóðhátíð í tilefni af 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar (þar sem núverandi þjóðsöngur landsins, Lofsöngur var frumfluttur), fullveldi fylgdi í kjölfarið árið 1918. Danski konungurinn var áfram þjóðhöfðingi til ársins 1944, þegar lýðveldið var stofnað.

[breyta] Hin ýmsu nöfn Íslands

Í gegnum tíðina hefur Ísland verið kallað mörgum nöfnum, meðal annarra eru Snæland, Garðarshólmi eftir Garðari Svavarssyni, Frón er ljóðrænna nafn yfir Ísland, Lýðveldið Ísland er formlegara nafn yfir Ísland, klaki (með ákveðnum greini) er óformlegt heiti. Einnig er var það áður kallað Hrímgrund og Hrímland. Að neðan er listi yfir hin ýmissu heiti Íslands:

  • Eylenda (kvk.) - eyja, þ.e.a.s. Ísland
    Fjarst í eilífðar útsæ
    vakir eylendan þín. (Stephan G. Stephansson)
  • Fjalladrottning (kvk.) - fjallkonan eða Ísland
  • Fjallkonan (kvk.) með greini - fjalladrottning, persónugert tákn Íslands
  • Frón (hk.) Ísland
    Heima á Fróni.
  • Garðarshólmi (kk.) Ísland, eftir Garðari Svavarssyni
  • Hrímey (kvk.)
  • Hrímgrund (kvk.)
  • Hrímland (hk.) (bókin Crymogaea er stundum nefnd „Hrímland”)[1]
  • Ísafold (hk.)
  • Ísaland (hk.)
    ...og flykkjast heim að fögru landi ísa. (sbr.)
  • Jökulmær (kvk.) Fjallkonan, Ísland.
  • Snjóland (hk.) Ísland.
  • Snæland (hk.) er það nafn sem Naddoður víkingur er sagður hafa gefið Íslandi á 9. öld
  • Thule (hk.) Sumir fræðimenn telja Ísland vera Thule, er Pýþeas fann um 300 f.Kr., en það er talið nokkuð ólíklegt. Pýþeas (frá Massalíu) segir að Týli sé lengst í norðri, bætir hann þessu við til að skýra nákvæmar legu og breidd eyjarinnar
    Parois ontos dsi tw apcticw o derinos tropikos cuclo.
    Þýtt: Þar er hvarfbaugur ígildi heimskautsbaugs.
  • Týli (hk.) Thule
  • Þyli (hk.) Thule

Um Íslendinga er einnig haft nafnið Frónbúi. Sjá einnig listann yfir gælunöfn fyrirbæra.

[breyta] Stjórnmál

Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn. Framkvæmdavaldið liggur hjá forseta og ríkisstjórn. Æðsti maður ríkisstjórnar er forsætisráðherra. Ríkisstjórnin ber ábyrgð gagnvart Alþingi, sem er handhafi löggjafarvaldsins ásamt forseta. Dómsvald er í höndum dómstóla; æðsti dómstóll landsins er Hæstiréttur.

Forseti Íslands er þjóðhöfðingi landsins og er þjóðkjörinn í beinni kosningu allra kjörbærra manna. Kjörtímabil hans er 4 ár. Forseti er ábyrgðarlaus á ríkisstjórnarathöfnum og lætur ráðherra framkvæma vald sitt. Hann veitir formönnum stjórnmálaflokka umboð til stjórnarmyndunar eftir kosningar til Alþingis og skipar ráðherra en oftast er þessu ferli í raun stýrt af stjórnmálaflokkunum sjálfum, aðeins þegar þeir geta ómögulega komist að niðurstöðu sjálfir nýtir forsetinn sér þetta vald og skipar sjálfur ríkisstjórn. Þetta hefur þó ekki gerst í sögu lýðveldisins en gerðist 1942 þegar Sveinn Björnsson, þáverandi ríkisstjóri Íslands, skipaði utanþingsstjórn. Forseti Íslands hefur málskotsrétt gagnvart þinglögum samkvæmt stjórnarskrá og ber þá að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu en lögin taka samt gildi, þangað til þau eru afnumin eða staðfest með þjóðaratkvæði.[2] Núverandi forseti er Ólafur Ragnar Grímsson, sem tók við embættinu árið 1996. Hann nýtti sér málskotsréttinn fyrstur forseta á Íslandi, þegar hann neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin árið 2004.

Alþingi, löggjafarþing Íslands, starfar í einni deild. 63 þingmenn þess eru kjörnir hlutfallskosningu í 6 kjördæmum. Kjörtímabilið er 4 ár en getur verið styttra ef það kemur til þingrofs en vald til að rjúfa þing liggur hjá ríkisstjórninni. Ráðherrar eiga einnig sæti á Alþingi en hafa ekki atkvæðarétt nema þeir séu einnig þingmenn en sú er reyndar venjan. Alþingi velur sér forseta til að hafa yfirumsjón með fundum þess, núverandi forseti Alþingis er Sturla Böðvarsson. Ríkisstjórnir á Íslandi eru nánast ávallt samsteypustjórnir tveggja eða fleiri flokka en einnig eru dæmi til um minnihlutastjórnir, einkum og sér í lagi vegna þess að enginn flokkur hefur hlotið hreinan meirihluta á þingi, í það minnsta ekki frá endurreisn lýðveldis. Núverandi ríkisstjórn er samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undir forystu Geirs H. Haarde forsætisráðherra.

[breyta] Skipting í stjórnsýsluumdæmi

[breyta] Kjördæmi

Íslandi er skipt upp í 6 kjördæmi sem kjósa sína fulltrúa á Alþingi.

[breyta] Sveitarstjórn

Íslandi er skipt upp í 104 sveitarfélög sem eru mikilvægustu stjórnsýslueiningar landsins og hafa víðtæk völd á sviði skólamála, skipulags, samgangna og félagsmála.

[breyta] Sýslur

Íslandi hefur frá fornu fari verið skipt upp í sýslur til umboðsstjórnar. Hinar gömlu landfræðilegu sýslur eru ekki lengur formlegar stjórnsýslueiningar á Íslandi, sýslumenn eru enn þá við lýði en umdæmi þeirra fylgja ekki alltaf gömlu sýsluskiptingunni.

[breyta] Landafræði

Samsett gervihnattarmynd af Íslandi.
Samsett gervihnattarmynd af Íslandi.

Ísland er staðsett á heitum reit á Atlantshafshryggnum. Það er 102.800 ferkílómetrar að stærð. Þar eru mörg virk eldfjöll (sjá eldfjöll Íslands) og ber þar helst að nefna Heklu (1491m). Um það bil 10% eyjarinnar er undir jöklum. Á Íslandi eru hverir víða, og gnótt jarðhita færir íbúunum heitt vatn, sem meðal annars er notað til húshitunar.

Ísland er önnur stærsta eyja Evrópu, á eftir Bretlandi. Eyjan er vogskorin, og flestir bæir standa við firði, víkur og voga. Helstu þéttbýlisstaðir eru höfuðborgin Reykjavík, Keflavík, þar sem einn af alþjóðlegum flugvöllum landsins er staddur, og Akureyri.

Ísland liggur á tveimur jarðskorpuflekum, Norður-Ameríkuflekanum og Evrasíuflekanum. Landið telst sögulega til Evrópu.

[breyta] Efnahagsmál

Aðalgrein: Efnahagur Íslands

Efnahagur þjóðarinnar byggir enn að talsverðu leyti á fiskveiðum, sem afla nær 40% útflutningstekna og veita 8% vinnandi manna störf. Þar sem aðrar náttúruauðlindir skortir (fyrir utan jarðhita og fallvötn til virkjunar), er efnahagslíf á Íslandi viðkvæmt og háð heimsmarkaðsverði á fiski og sjávarafurðum. Auk þess geta minnkandi fiskstofnar í efnahagslögsögu landsins haft töluverð áhrif á sveiflur í efnahagslífinu og heimsmarkaðsverð á áli og kísilgúri sem eru stærstu útflutningsvörur Íslendinga á eftir sjávarafurðum.

Stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, sat við stjórnartaumana frá 1995 til 2007. Hún hafði á stefnuskránni að draga úr ríkisumsvifum og einkavæða ríkisfyrirtæki. Ríkisútgjöld, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, hafa þó vaxið síðustu ár. Núverandi ríkisstjórn er andvíg inngöngu í Evrópusambandið. Nú sitja í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylking, tveir stærstu flokkarnir í íslenskri pólitík. Geir H. Haardre forsætisráðherra fer fyrir henni.

Fjölbreytileiki í efnahagslífinu hefur aukist undanfarna tvo áratugi. Ferðaþjónusta verður æ fyrirferðameiri, og reyna Íslendingar að lokka til sín útlendinga með auglýsingum um hreina og ómengaða náttúru og öflugt næturlíf. Nokkuð dró úr hagvexti á árunum 2000 til 2002, en árið 2002 var hann neikvæður um 0,6%, frá 2003 hefur hagvöxtur hins vegar verið drjúgur en efnahagur í samanburði við nágrannalönd einkennst af óstöðugleika.

[breyta] Lýðfræði

Íslendingar eru í megindráttum norræn þjóð. Landið byggðist upphaflega norrænum mönnum, einkum frá Noregi og Keltum frá nýlendum víkinga á Bretlandseyjum og Íslendingar hafa í gegnum tíðina átt mest samskipti við helstu fiskveiðiþjóðir á Norður-Atlantshafi. Til er kenning um að Íslendingar séu að uppruna sérstakur þjóðflokkur, aðgreindur frá öðrum þjóðflokkum á norðurlöndum („Herúlakenningin“). Á síðari tímum hafa ýmsar kenningar um uppruna þjóðarinnar verið settar fram með erfðafræðilegum rökum. Þá er talað um að flestar konur sem hingað komu hafi verið keltneskar (flestar ambáttir) en karlarnir að miklu leyti norrænir.

Íbúafjöldi landsins sveiflaðist á milli um 30.000 og 80.000 við hefðbundinn efnahag í bændasamfélagi fyrri alda. Á 19. og 20. öld hefur Íslendingum fjölgað nokkuð ört og nú eru íbúar landsins rétt rúmlega 315.000 auk nokkurra þúsunda af íslenskum uppruna sem ekki eru búsett á Íslandi.

Á Íslandi er töluð íslenska, sem er norrænt tungumál, og flestir íbúar landsins eru í hinni evangelísk-lúthersku þjóðkirkju.

Mikil fjölgun hefur verið á erlendum ríkisborgurum hérlendis en árið 2005 fjölgaði þeim um 29,5% og árið 2006 var fjölgunin 34,7%.[3] Árið 2007 voru erlendir ríkisborgarar 18.563 (6% af íbúum Íslands), og þann 1. janúar 2008 voru 21.434 erlendir ríkisborgarar skráðir (6,8% af íbúum Íslands).[3] Það er 15,5% fjölgun árið 2007. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda Íslands er nú hærra en annars staðar á Norðurlöndum, en árið 2006 var það næst hæst í Svíþjóð eða um 5,4%.[3] Konur voru jafnan fjölmennari í hópi erlendra ríkisborgara til árins 2003, en síðan 2004 hafa karlar verið fjölmennari en konur. Í árslok 2007 voru karlar með erlent ríkisfang 8,1% allra karla en konur 5,5% allra kvenna.[3]

[breyta] Menning

Aðalgrein: Íslensk menning

[breyta] Þekktir Íslendingar

[breyta] Frá miðöldum

[breyta] Listamenn

  • Louisa Matthíasdóttir
  • Laddi
  • Alfreð Gíslason

[breyta] Rithöfundar

[breyta] Tónlistarmenn og hljómsveitir

[breyta] Kvikmynda- og bókmenntaverðlaun

Árlega eru veitt verðlaun fyrir afrek liðins árs í bókmenntum og kvikmyndagerð á Íslandi. Edduverðlaunin eru verðlaun sem veitt eru þeim sem þykja hafa skarað fram úr á sviði kvikmynda og sjónvarps. Síðar á árinu eru Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent því fólki sem talið er hafa borið af á ritvellinum.

[breyta] Tengt efni

[breyta] Neðanmálsgreinar

  1. http://www.forsaetisraduneyti.is/radherra/raedurGHH/nr/2343
  2. Deildar meiningar eru um raunveruleg völd forsetans, þá sérstaklega hvort hann geti neitað að skrifa undir lög og hvort slíkur gjörningur hafi einhverjar afleiðingar. Í stjórnarskránni er sagt að slík synjun kalli á þjóðaratkvæðagreiðslu um lögin, en hins vegar lætur forseti ráðherra framkvæma vald sitt og eru margir á þeirri skoðun að það gildi um þetta vald eins og önnur völd forseta.
  3. 3,0 3,1 3,2 3,3 http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/11/6_8_prosent_ibua_erlendir_rikisborgarar/

[breyta] Tenglar

Commons
Wikimedia Commons hefur upp á að bjóða margmiðlunarefni tengt:
Wikiorðabók
Wikiorðabókin er með skilgreiningu tengda:

Á öðrum tungumálum
Static Wikipedia 2008 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Static Wikipedia 2007 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Static Wikipedia 2006 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Sub-domains

CDRoms - Magnatune - Librivox - Liber Liber - Encyclopaedia Britannica - Project Gutenberg - Wikipedia 2008 - Wikipedia 2007 - Wikipedia 2006 -

Other Domains

https://www.classicistranieri.it - https://www.ebooksgratis.com - https://www.gutenbergaustralia.com - https://www.englishwikipedia.com - https://www.wikipediazim.com - https://www.wikisourcezim.com - https://www.projectgutenberg.net - https://www.projectgutenberg.es - https://www.radioascolto.com - https://www.debitoformtivo.it - https://www.wikipediaforschools.org - https://www.projectgutenbergzim.com