19. desember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nóv – Desember – Jan | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2007 Allir dagar |
19. desember er 353. dagur ársins (354. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 12 dagar eru eftir af árinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 1821 - Eldgos hófst í Eyjafjallajökli, sem aldrei hafði gosið fyrr á sögulegum tíma.
- 1901 - Stórbruni varð á Akureyri og urðu 50 manns heimilislausir er tólf hús brunnu.
- 1967 - Lögræðisaldur var lækkaður úr 21 ári í 20 ár. Síðar var hann svo lækkaður aftur í 18 ár.
- 1969 - Alþingi samþykkti að Ísland gengi í EFTA frá og með 1. mars 1970.
- 1983 - Sigurður Magnússon og Ingibjörg Daðadóttir, hjón í Stykkishólmi, áttu 75 ára hjúskapararafmæli. Eftir það lifði Sigurður í fimm mánuði en Ingibjörg í fjögur ár.
- 1989 - Húsnæðisstofnun ríkisins gaf út fyrstu húsbréfin.
- 1992 - Frumsýnd var kvikmyndin Karlakórinn Hekla í leikstjórn Guðnýjar Halldórsdóttur.
- 2006 - Íslenska flutningaskipið Wilson Muuga strandaði á Hvalsnesi í Sandgerðisbæ. Allir í áhöfn þess björguðust en einn danskur sjóliði fórst við björgunarstörf.
[breyta] Fædd
- 1942 - Jón Júlíusson, íslenskur leikari.
- 1951 - Árni Stefán Jónsson, formaður SFR.
- 1956 - Jens Fink-Jensen, danskur rithöfundur og ljóðskáld.
- 1967 - Guðlaugur Þór Þórðarson, íslenskur stjórnmálamaður.
[breyta] Dáin
- 401 - Anastasíus páfi.
- 1741 - Vitus Bering, danskur landkönnuður, deyr úr skyrbjúg í Alaska (f. 1681).
- 1851 - William Turner, breskur listmálari (f. 1775).
[breyta] Hátíðis- og tyllidagar
- Samkvæmt kvæði Jóhannesar úr Kötlum, „Jólin koma“ kemur jólasveinninn Skyrjarmur til byggða þennan dag.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |