22. janúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Des – Janúar – Feb | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
2008 Allir dagar |
22. janúar er 22. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 343 dagar (344 á hlaupári) eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1440 - Gilles de Rais játaði margföld morð og var dæmdur til dauða.
- 1517 - Tyrkir undir forystu Selíms 1., sigraði Mamelúka í Egyptalandi.
- 1615 - Sengokutímabilinu lauk með því að her Tokugawa Ieyasu náði Ósakakastala í Japan á sitt vald.
- 1840 - Breskir landnemar komust til Nýja-Sjálands.
- 1910 - Jarðskjálfti, einn sá öflugasti sem mælst hefur á Íslandi, 7,1 stig á Richter, en litlar skemmdir urðu. Miðjan var út af Öxarfirði.
- 1918 - Mesta frost mældist á Íslandi, -37,9°C á Grímsstöðum á Fjöllum.
- 1962 - Sæsímastrengurinn Scotice, milli Íslands og Skotlands um Færeyjar, var tekinn í notkun.
- 1968 - B-52-sprengjuflugvél fórst sunnan við Thule-herstöðina á Grænlandi.
- 1980 - Andrei Sakharov handtekinn í Moskvu.
- 1983 - Björn Borg lagði spaðann á hilluna.
- 1983 - Tvö snjóflóð féllu á Patreksfirði. Fjórir fórust og margir misstu heimili sín.
- 1988 - Paul Watson, skipstjóra og forsprakka Sea Shepherd samtakanna, var vísað úr landi, gefið að sök að hafa látið sökkva hvalbátunum tveimur í Reykjavíkurhöfn árið 1986.
- 2006 - Cavaco Silva var kjörinn forseti Portúgals.
[breyta] Fædd
- 1561 - Sir Francis Bacon, enskur heimspekingur (d. 1626).
- 1592 - Pierre Gassendi, franskur heimspekingur (d. 1655).
- 1788 - Byron lávarður, enskt skáld (d. 1824).
- 1814 - Eduard Zeller, þýskur heimspekingur (d. 1908).
- 1843 - Friedrich Blass, þýskur fornfræðingur (d. 1907).
- 1885 - Jónas Þorbergsson, íslenskur stjórnmálamaður og ritstjóri (d. 1968).
- 1927 - Guðmundur J. Guðmundsson, íslenskur verkalýðsforingi (d. 1997).
- 1968 - Frank Lebœuf, franskur knattspyrnumaður.
- 1980 - Ben Moody, bandarískur gítaristi (Evanescence).
- 1985 - Mohamed Sissoko, malískur knattspyrnumaður.
[breyta] Dáin
- 1258 - Þorgils skarði Böðvarsson veginn á Hrafnagili.
- 1531 - Andrea del Sarto, ítalskur listmálari (f. 1487).
- 1901 - Viktoría Bretadrottning (f. 1819).
- 1922 - Elsa Andersson, frumkvöðull í flugi (f. 1897).
- 1973 - Lyndon B. Johnson, Bandaríkjaforseti (f. 1908).
- 1975 - Clara Pontoppidan, dönsk leikkona (f. 1883).
- 1976 - Hermann Jónasson íslenskur stjórnmálamaður..
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |