27. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Okt – Nóvember – Des | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2007 Allir dagar |
27. nóvember er 331. dagur ársins (332. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 34 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1804 - Frederik Christopher Trampe greifi varð amtmaður í Vesturamti og tveimur árum síðar stiftamtmaður. Vegna húsnæðiseklu varð hann að setjast að í fangelsinu í Reykjavík, sem eftir það var nefnt Konungsgarður og enn síðar Stjórnarráðshús.
- 1857 - Tvö skip fórust með allri áhöfn og farþegum. Annað þeirra var póstskipið Sölöven, sem fórst undan Svörtuloftum og hitt var Drei Annas, sem fórst undan Mýrum. Meðal farþega voru þekktir borgarar í Reykjavík.
- 1927 - Ferðafélag Íslands var stofnað. Félagið hefur staðið fyrir útgáfu árbókar og reist sæluhús víðs vegar um landið.
- 1950 - Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík stofnuð
- 1956 - Vilhjálmur Einarsson, 22 ára, setti Íslandsmet og Norðurlandamet í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu er hann stökk 16,25 metra. Jafnframt var þetta Ólympíumet í nokkrar mínútur, en endaði með silfurverðlaunum.
- 1974 - Hryðjuverkalög tóku gildi í Bretlandi.
- 1980 - Utangarðsmenn gáfu út sína fyrstu plötu, Geislavirkir.
[breyta] Fædd
- 1942 - Jimi Hendrix, bandarískur tónlistarmaður (d. 1970).
- 1970 - María Reyndal, íslensk leikkona og leikstjóri.
- 1978 - The Streets, breskur rappari.
- 1985 - Klara Ósk Elíasdóttir, íslensk söngkona.
[breyta] Dáin
- 8 f.Kr. - Hóratíus, rómverskt skáld (f. 65 f.Kr.).
- 1474 - Guillaume Dufay, franskt tónskáld (f. 1397).
- 1680 - Athanasius Kircher, þýskur vísindamaður (f. 1601).
- 1895 - Sölvi Helgason, íslenskur listamaður og flakkari (f. 1820).
- 1896 - Grímur Thomsen skáld á Bessastöðum, 76 ára.
- 1981 - Halldóra Bjarnadóttir, ritstjóri og skáld, f. 1873.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |