6. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | |||||
2007 Allir dagar |
6. apríl er 96. dagur ársins (97. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 269 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 648 f.Kr. - Fyrsti sólmyrkvinn sem skriflegar heimildir eru til um. Skráðar af Forn-Grikkjum.
- 1580 - Jarðskjálfti í Englandi olli skemmdum á St. Pauls kirkjunni í London og mörgum fleiri byggingum.
- 1652 - Hollenski skipstjórinn Jan van Riebeeck stofnaði birgðastöð á Góðrarvonarhöfða. Út frá henni reis Höfðaborg síðar.
- 1746 - Tveir bátar af þremur, sem reru frá Ingólfshöfða fórust. Eftir það var útgerð lögð af þaðan.
- 1830 - Joseph Smith stofnaði mormónakirkjuna í New York-borg.
- 1896 - Fyrstu nútíma Ólympíuleikarnir hófust í Aþenu.
- 1909 - Robert Peary taldi sig hafa náð Norðurpólnum. Ekki varð ljóst fyrr en tæpri öld síðar að það var ekki rétt.
- 1917 - Bandaríkin lýstu stríði á hendur Þjóðverjum.
- 1941 - Lengsti þorskur sem vitað var um að veiðst hefði á Íslandsmiðum var dreginn úr Miðnessjó. Hann var 181 cm á lengd.
- 1944 - Bandarísk herflugvél fórst út af Vatnsleysuströnd og var átta mönnum bjargað.
- 1979 - Kvikmyndirnar Land og synir, Óðal feðranna og Veiðiferðin hlutu hæstu styrki við fyrstu úthlutun úr Kvikmyndasjóði.
- 1979 - Zulfikar Ali Bhutto, forseti Pakistans var tekinn af lífi.
- 1992 - Stríð hófst í Bosníu og Hersegóvínu
- 1998 - Pakistan prófaði meðaldrægar eldflaugar sem hægt væri að nota til að ráðast á Indland.
[breyta] Fædd
- 1483 - Rafael, ítalskur málari og arkitekt (d. 1520).
- 1866 - Butch Cassidy, útlagi í villta vestrinu (d. 1909).
- 1890 - Anthony Fokker, hollenskur flugvélahönnuður (d. 1939).
- 1928 - James Watson, erfðafræðingur.
- 1942 - Barry Levinson, kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri.
[breyta] Dáin
- 1199 - Ríkharður I. Englandskonungur
- 1520 - Rafael, ítalskur málari og arkitekt
- 1971 - Igor Stravinsky, tónskáld
- 1992 - Isaac Asimov, rithöfundur (f. 1920)
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |