18. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | |||||
2007 Allir dagar |
18. apríl er 108. dagur ársins (109. á hlaupári) samkvæmt gregoríanska tímatalinu. 257 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1355 - Marino Faliero, hertogi í Feneyjum, var hálshöggvinn fyrir samsæri gegn Minnaráðinu.
- 1872 - Mikið tjón varð á Húsavík vegna jarðskjálfta og varð á annað hundrað manns húsnæðislaust.
- 1903: Húsið Glasgow í Reykjavík brann til kaldra kola. Glasgow var stærsta hús á Íslandi. Mannbjörg varð.
- 1906 - Mikill jarðskjálfti olli gífurlegum skemmdum í San Francisco í Bandaríkjunum. Eldar kviknuðu í kjölfarið og juku mjög á skemmdirnar. Fjöldi fólks fórst.
- 1944 - Hermann Jónasson tók við af Jónasi Jónssyni frá Hriflu sem formaður Framsóknarflokksins.
- 1954 - Gamal Abdal Nasser kemst til valda í Egyptalandi.
- 1971 - Magnús Torfi Ólafsson bar sigur úr býtum í spurningakeppni útvarpsins, Veistu svarið? Þremur mánuðum síðar var hann orðinn menntamálaráðherra.
- 1980 - Ródesía breyttist formlega í Simbabve.
- 1996 - Qana-fjöldamorðin í Líbanon: Í það minnsta 106 líbanskir borgarar láta lífið er ísraelski herinn beitir sprengjum gegn byrgi SÞ nálægt Qana.
- 2005 - Hugbúnaðarrisinn Adobe Systems tilkynnir kaup sín á Macromedia.
- 2007 - Mikill bruni verður á horni Austurstætis og Lækjargötu.
- 2007 - Vatntjón varð þegar allt að 80°C heitt vatn rann niður Vitastíg og þar út í átt að Snorrabraut um Laugaveg.
[breyta] Fædd
- 1480 - Lucrezia Borgia, ítölsk hertogaynja (d. 1519).
- 1772 - David Ricardo, breskur hagfræðingur (d. 1823).
- 1850 - Clarence Darrow, bandarískur lögfræðingur
- 1902 - Giuseppe Pella, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu (d. 1981).
- 1918 - Gabriel Axel, danskur kvikmyndaleikstjóri.
- 1926 - Indriði G. Þorsteinsson, íslenskur rithöfundur (d. 2000).
- 1927 - Samuel P. Huntington, bandarískur stjórnmálafræðingur
- 1964 - Niall Ferguson, breskur sagnfræðingur
- 1972 - Eli Roth, Bandarískur kvikmyndaleikstjóri
[breyta] Dáin
- 1955 - Albert Einstein, austurrískur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi
- 2004 - Ratu Sir Kamisese Mara, fyrsti forsetisráðherra Fiji og forseti Fiji
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |